Sauðlauksdalsvatn

From: kr.2.000

Sauðlauksdalsvatn – Dagsleyfi

Lýsing

Hér getur þú keypt dagsleyfi í Sauðlauksdalsvatn. Vatnið er feykivinsælt veiðivatn í nágrenni Patreksfjarðar og hefur að geyma bæði sjóbleikju, staðbundna bleikju og urriða.

Staðsetning:
Sauðlauksdalsvatn er í Vestur-Barðastrandasýslu á Vestfjörðum, í nágrenni Patreksfjarðar.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi.
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 380 km og 28 km frá Patreksfirði.   Með því að taka ferjuna Baldur yfir Breiðafjörð er hægt að stytta vegalengdina til muna, eða um 150 km.

Upplýsingar um vatnið:
Vatnið er um 0,35 km2 að flatarmáli og stendur í um 10m hæð yfir sjó.  Gott aðgengi er að vatninu, en aðeins má aka eftir merktum slóðum.

Veiðisvæðið:
Það má veiða í öllu vatninu, en aðallega er veitt þeim megin sem komið er að vatninu.  Vatnið hentar vel fyrir fluguveiði, enda er auðvelt að vaða aðeins út í gulum sandinum.

Gisting:
Heimilt er að tjalda við vatnið á eigin ábyrgð ,en engin hreinlætisaðstaða er á svæðinu. Þó stendur til að koma upp hreinlætisaðstöðu þar fyrir sumarið. Einnig er að kaupa gistingu á gistiheimilum á Patreksfirði.

Veiði:
Í vatninu er bleikja, bæði sjógengin og staðbundin.  Einnig er vænan urriða að finna í vatninu og hafa menn verið að veiða allt að 16 punda stykki.  Uppistaðan í bleikjuveiðinni er 1-1,5 pund að þyngd.

Daglegur veiðitími:
Heimilt er að veiða allan sólarhringinn.

Tímabil:
Veiðitímabilið hefst þegar ísa leysir og veitt fram á haust.

Agn:
Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn.

Besti veiðitíminn:
Kvöldin og morgnarnir hafa reynst best við vatnið.

Reglur:
Vinsamlegast skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vegar.  Bannað er að veiða í ánni sem rennur í vatnið.  Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.  Veiðimenn fara beint inn að vatni og hafi Veiðikortið við höndina þegar veiðivörður vitjar gesta.  Veiðimönnum ber að skila veiðiskýrslum á netinu, www.veidikortid.is

Annað:
Landeigandi ber enga ábyrgð á tjóni er korthafar Veiðikortsins kunna að verða fyrir, eða öðru sem upp kann að koma í tenglsum við veru veiðimanna á viðkomandi veiðisvæði.

 

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Sauðlauksdalsvatn”