Hagavík við Þingvallavatn

From: kr.2.500

Hagavík Þingvallavatni – Dagsleyfi

Flokkur:

Lýsing

Hér getur þú keypt dagsleyfi í Hagavík við Þingvallavatn. Hagavík er einstaklega falleg og aðgengileg vík rétt við veginn.

Leiðarlýsing: 
Vatnið er í um 50 km. fjarlægð frá Reykjavík.

Upplýsingar um vatnið:
Þingvallavatn er í um 100 m. hæð yfir sjávarmáli og mælist um 84 km2 að flatarmáli. Mesta dýpi er um 114 m. Vatnið er eitt vinsælasta veiðivatn á landinu og á sér stóran hóp af fastagestum. Náttúrufegurð og saga gerir Þingvallavatn einstakt meðal vatna landsins.

Veiðisvæðið:
Handhöfum Veiðikortsins og dagleyfahöfum er heimilt að veiða í Hagavík við Þingvallavatn. Ath sérstaklega veiðimörk en svæðið afmarkast af girðingu vestan- og austanmegin – sjá kort.

Gisting:
Óheimilt er að tjalda eða gista í húsbílum við svæðið en bent er á ferðaþjónustur í nágrenninu. T.d. hjá Skátunum við Úlfljótsvatn.

Veiði:
Í vatninu eru 4 tegundir af bleikju sem og víðfrægur urriðastofn. Algeng stærð á bleikjunni er frá hálfu pundi upp í 4 pund. Bleikjutegundirnar eru: Kuðungableikja, sílableikja, murta og gjámurta. Bleikjuafbrigðin hafa þróast í vatninu á síðustu 10.000 árum.

Daglegur veiðitími:
Veiðitími er frjáls og því heimilt að veiða allan sólarhringinn.

Tímabil:
Veiðitímabilið hefst 1. apríl og því lýkur 15. september.

Agn:
Eingöngu leyfð veiði á flugu, maðk og spón. Nefna má margar góðar flugur, en mest veiðist á litlar silungapúpur eins og t.d. Peacock, Watson Fancy, svartan Killer svo einhverjar séu nefndar. Oft reynist vel að nota langan taum og draga mjög hægt sérstaklega þar sem mikið dýpi er.

Besti veiðitíminn:
Jöfn veiði er í vatninu. Mjög góð bleikjuveiði er í maí, júní og júlí. Bestu líkurnar til að veiða urriða eru seint á kvöldin.

Reglur:
Veiðimenn og útivistarfólk eru vinsamlegast beðið að ganga vel um svæðið og skilja ekki eftir sig rusl. Óheimilt er að aka utan vega. Vatnið er mjög kalt og eru menn beðnir um að fara að öllu með gát. Öll veiði úr bátum er bönnuð korthöfum Veiðikortsins. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Bannað er að kveikja opin eld.

Vegna rannsókna á urriða í Þingvallavatni eru veiðimenn beðnir að athuga hvort veiddir urriðar séu merktir. Merkin eru á baki urriðans neðan við bakuggann og geta verið einföld slöngumerki eða rafeindamerki. Veiði menn merkta fiska þá má vinsamlegast hafa samband við Jóhannes hjá Laxfiskar.is

 

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Hagavík við Þingvallavatn”