Elliðavatn

From: kr.3.500

Elliðavatn – Dagsleyfi

Lýsing

Hér getur þú keypt dagsleyfi í Elliðavatn. Elliðavatn er eitt vinsælasta veiðivatn landsins og oft kallað háskóli fluguveiðimannsins.

Leiðarlýsing: 
Vatnið tilheyrir bæði Reykjavík og Kópavogi. Hægt er að komast að vatninu með því að fara Heiðmerkurafleggjarann og í gegnum Kópavog til að komast að Vatnsendalandi. Til að komast í Hólmsá má beygja til norðurs rétt austan við Heiðmerkurafleggjarann í áttina að Gunnarshólma. Einnig má komast að ánni með því að beygja til norðurs nokkru austan við Gunnarshólma, eða leggja við brúna yfir hana á Suðurlandsvegi og ganga þaðan upp eða niður með ánni.

Upplýsingar um vatnið:
Elliðavatn er vinsælasta veiðivatn höfuðborgarsvæðisins og afar gjöfult. Vatnið er í um 73m. hæð yfir sjávarmáli og er um 1,8 km2 að flatarmáli. Mesta dýpi er rúmir 2 m. en meðaldýpi er um 1 m. Í vatnið renna Bugða og Suðurá. Hólmsá heitir áin nokkru ofar, áður en hún skiptist í Bugðu og Suðurá.

Veiðisvæðið:
Veiðisvæðið er Elliðavatn fyrir löndum Elliðavatns og Vatnsenda, auk Hólmsár og Nátthagavatns, þaðan sem Hólmsá rennur. Óheimilt er að veiða í Suðurá. Ekki má veiða nær Elliðavatnsstíflu en 50 metra.

Veiði:
Í vatninu eru bleikja, urriði, lax og stöku sjóbirtingur. Bleikjan var ríkjandi í vatninu en síðasta áratug hefur urriðinn sótt í sig veðrið og er nú að verða algengasta fiskitegundin í vatninu. Lax og sjóbirtingur ganga í vatnið úr Elliðaánum og upp í Hólmsá. Urriðinn í vatninu
hefur verið að stækka og síðasta sumar veiddust þar allt upp í sex punda urriðar. Veiðimenn eru beðnir um að skila inn veiðiskýrslum á heimasíðu Veiðikortsins, www.veidikortid.is.

Daglegur veiðitími:
Heimilt er að veiða frá kl. 7:00 til 24:00.

Agn:
Eingöngu er leyfð veiði með flugu, maðk og spóni, en í Hólmsá má aðeins veiða á flugu! Nefna má margar góðar flugur en mest veiðist á litlar silungapúpur eins og t.d. Tailor, Mobutu, Peter Ross, Peacock, Watson‘s Fancy, svo að einhverjar séu nefndar. Þegar líður á sumarið og fiskurinn tekur að vaka eru þurrflugur góður kostur. Einnig er gott að nota litlar straumflugur fyrir urriðann, eins og t.d. Black Ghost, Mickey Finn, rauðgulan Nobbler, Dentist o.fl.

Besti veiðitíminn:
Jöfn veiði er í vatninu. Vatnið er þó sérstaklega vinsælt í maí. Mjög góð veiði er yfirleitt í maí, júní og júlí.
Bestu líkurnar til að veiða urriða eru seint á kvöldin og fyrripart dags.

Reglur:
Veiðimenn og útivistarfólk er vinsamlegast beðið að ganga vel um svæðið og skilja ekki eftir sig rusl. Jafnframt eru gestir vinsamlegast beðnir um að hirða upp rusl sem á vegi þeirra verður. Vilji menn gera að aflanum við vatnið eru þeir beðnir um að taka með sér slor og hausa. Óheimilt er að aka utan vega. Öll umferð báta á vatninu er bönnuð nema með leyfi landeigenda. Bent er á bátaleigu á Kríunesi í landi Vatnsenda. Veiðimenn skulu ekki fara inn á sumarbústaðalóðir við vatnið og virða þriggja metra reglu frá vatnsbakka þar sem það getur átt við. Vegna rannsókna á urriða á vatnasvæðinu eru veiðimenn beðnir að athuga hvort veiddir urriðar séu mælimerktir. Merkin eru fest á baki urriðans og geta verið einföld slöngumerki eða rafeindamerki. Merkjum ber að skila til Laxfiska ehf. www.laxfiskar.is Í Hólmsá má aðeins veiða á flugu!

Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum:
Veiðikortshöfum ber að sýna veiðiverði Veiðikortið / veiðileyfi og skilríki þegar þess er óskað. Þegar handhafi Veiðikortsins er á bíl er hann beðinn um að hafa Veiðikortið sýnilegt við framrúðu bílsins.

Einnig viljum við benda á vandaðan bækling um veiðar í Elliðavatni sem Geir Thorsteinsson hefur gefið út á rafrænu formi og hægt er að nálgast hann með því að smella hér!

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Elliðavatn”