Hreðavatn

From: kr.2.500

Hreðavatn – Dagsleyfi

Lýsing

Hér getur þú keypt dagsleyfi í Hreðavatn. Vinsælt veiðivatn í nágrenni við Bifröst.

Staðsetning:
Hreðarvatn er í Norðurárdal við þjóðveg nr. 1.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi.
Ekið er Norðurárdalinn og beygt vestur rétt sunnan við Bifröst. Vatnið er í um 115 km fjarlægð frá Reykjavík sé ekið um Hvalfjarðargöng og um 30 km frá Borgarnesi.

Upplýsingar um vatnið:
Hreðavatn er aðgengilegt og gjöfult veiðivatn í fallegu umhverfi skammt frá Bifröst. Vatnið er um 1 km2 og mesta dýptin er um 20m. Það stendur í um 56 m. hæð yfir sjávarmáli.

Veiðisvæðið
Heimilt er að veiða í Hreðavatnslandi sem er norðanmegin í vatninu. Sjá veiðimörk á korti.

Gisting
Bannað er að tjalda við vatnið en ýmsir ferðaþjónustuaðilar eru í nágrenninu.

Veiði
Í vatninu veiðast bæði bleikja og urriði, jafnt litlir og stórir fiskar.

Agn
Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn.

Besti veiðitíminn
Best er að veiða í Hreðavatni fyrri hluta sumars en nokkuð jöfn veiði er yfir sumarið.

Reglur
Veiðimenn mega fara beint til veiða en skulu hafa Veiðikortið á sér til að sýna veiðiverði þegar hann vitjar veiðimanna.

Veiðimenn eru einnig vinsamlegast beðnir um að fylla út veiðiskýrslu á veidkortid.is/veidibok

Veiðimenn eru vinsamlegast beðnir um að ganga vel um svæðið og ekki skilja eftir sig rusl.

Öll bátaumferð er bönnuð.

 

 

 

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Hreðavatn”