Lýsing
Gjafabréf á Silungsveiði frá A-Ö fyrir bæði veiðisjúka og veiðiforvitna.
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Caddis bræðurnir Hrafn Ágústsson og Ólafur Ágúst Haraldsson og Ólafur Tómas Guðbjartsson, betur þekktur undir nafninu Dagbók Urriða. Þátttakendur fá beint í æð sérsniðið námskeið þar sem þeir félagar munu miðla á markvissan hátt úr reynslu sinni og viskubrunni um silungsveiðar.
Bréfinu fylgir kóði fyrir námskeiðið og getur handhafi bréfsins nýtt hann við bókun á vefsíðu námskeiðsins og valið sér þann dag sem hentar best.
www.tokustud.is
Bréfið kostar aðeins 14.900 og hægt er að sækja það á skrifstofu Veiðikortsins/SVFR á virkum dögum milli 9-16 að Rafstöðvarvegi 14.
Staðsetning námskeiðanna verður kynnt síðar.
Silungsveiði frá A-Ö
Námskeiðið er hannað fyrir bæði byrjendur og langt komna. Teljum við efnið vera djúpt og aðgengilegt og er miðað að því að veita þekkingu sem erfitt er að finna annarsstaðar. Markmið námskeiðsins er að eftir að hafa setið þetta námskeið sé þáttakandi með djúpa innsýn inn í þennan ævintýraheim stangveiðinnar og tilbúinn til að veiða hvar sem er, við flestar aðstæður.
Námskeiðin verða á laugardögum í mars 2023.
Námskeiðið er fimm klukkustundir og verður í fyrirlestraformi.