Langavatn

From: kr.2.000

Langavatn – Dagsleyfi

Flokkur:

Lýsing

Hér getur þú keypt dagsleyfi í Langavatn í Borgarbyggð.

Staðsetning:
Langavatn á Mýrum liggur í sunnanverðum Langadal í Mýrasýslu, norðaustur af Grímsstaðamúla.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi.
Leiðin að Langavatni liggur eftir þjóðvegi nr. 1 um Borgarnes að Svignaskarði. Þar er ekinn 13 km. langur afleggjari, jafnan fólksbílafær, á vinstri hönd, upp með Gljúfurá. Þá er einnig fært að vatninu eftir leið upp með Langá.

Upplýsingar um vatnið:
Langavatn er um 5,1 km2 að flatarmáli og hefur 36 metra dýpi, þegar mest er. Það liggur 215 metra yfir sjávarmáli í fallegu umhverfi. Þangað rennur Langavatnsá að norðan, en Beilá að austan. Úr suðvesturhorni þess fellur hin kunna Langá til suðurs. Langavatn hefur verið notað til vatnsmiðlunar og því getur yfirborðshæð þess verið nokkuð breytileg. Helstu veiðistaðir eru austarlega í vatninu við hólma, sem eru fram undan leitarmannakofa við vatnið. Góðir veiðistaðir eru einnig við útfall Langár.

Veiðisvæðið:
Veiða má í vatninu öllu.

Gisting:
Korthafar og veiðileyfahafar geta tjaldað endurgjaldlaust við vatnið, en enga hreinlætisaðstöðu er þar að finna.

Veiði:
Í vatninu veiðist bæði bleikja og urriði, bæði litlir og stórir fiskar. Netaveiði er bönnuð fyrir handhafa Veiðikortsins.

Daglegur veiðitími:
Leyfilegt er að veiða frá kl. 7 til kl. 24.

Tímabil:
Veiðitímabil hefst 15. júní og lýkur því 20. september.

Agn:
Allt löglegt agn: Fluga, maðkur og spónn.

Besti veiðitíminn:
Best er að veiða í Langavatni fyrri hluta sumars.

Reglur:
Veiðmenn skulu hafa veiðileyfi / Veiðikortið á sér til að sýna veiðiverði þegar hann vitjar veiðimanna. Veiðimenn eru einnig vinsamlegast beðnir um að fylla út Veiðiskýrslu á vefnum og senda okkur með tölvupósti.

 

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Langavatn”